Við notum vafrakökur til að greina upplýsingar um notkun vefsíðunnar til að bæta efni og birta markaðsefni. Nánar um vafrakökur LEYFA VAFRAKÖKUR
Skilmálar

Almennar upplýsingar um R&M ehf rekstraraðila fluguveidi.is
R&M ehf, Hrafnagilsstræti 38, 600 Akureyri, Ísland, kt: 7105101560, netfang: info@fluguveidi.is

Trúnaður og vernd persónuupplýsinga
Við heitum kaupanda fullum trúnaði varðandi upplýsingar er kaupandi gefur upp í tengslum við skráningu á vefnum sem og viðskipti. Þær upplýsingar munu ekki undir neinum kringumstæðum verða afhentar þriðja aðila.

Verð og fyrirvarar
Verð geta breyst án fyrirvara og eru uppgefin verð án virðisaukaskatts nema annað sé tilgreint (veiðileyfi eru ekki virðisaukaskattskyld). fluguveidi.is áskilur sér rétt til að afturkalla pöntun sé vara ranglega skráð á vefnum eða ef um tvíbókun er að ræða. Ef að um tvíbókun er að ræða, er seinni pöntunin afturkölluð.

Greiðslumáti
Greiða má fyrir veiðileyfi og þjónustu sem keypt eru á fluguveidi.is með greiðslukorti (MasterCard/Visa) í gegnum örugga greiðslugátt Valitor.

Skila- og endurgreiðsluréttur
Veiðileyfi og tengd þjónusta sem keypt er á fluguveidi.is fæst ekki undir neinum kringumstæðum endurgreidd. fluguveidi.is getur aðstoðað kaupanda við endursölu gegn þóknun geti kaupandi ekki nýtt sér veiðileyfið af einhverjum ástæðum.

Skilmálar og veiðireglur veiðisvæða
Við skráningu á pöntun skal kaupandi hafa kynnt sér skilmála og veiðireglur þess veiðisvæðis sem keypt er veiðileyfi á. Skilmálar og reglur geta verið mismunandi á milli veiðisvæði og geta verið breytilegir á milli ára.

Afhending og afhendingartími
Kvittun sem jafnframt er veiðileyfi er afgreidd með rafrænum hætti um leið og staðfesting berst frá kortagátt um greiðslu. Veiðileyfi eru send í tölvupósti á netfang kaupanda.

Endursala
Endursala veiðileyfa er ekki leyfileg nema með sérstöku samþykki hverju sinni. Keypt veiðileyfi gildir einungis fyrir kaupanda og samferðarfólk nema um annað sé samið við okkur eða söluaðila viðeigandi veiðisvæðis.

Samskipti
Netfangið info@fluguveidi.is heimilar þér að vera í beinu sambandi við okkur með spurningar sem upp kunna að koma. Við lesum öll skilaboð og gerum okkar besta til að svara þeim hratt og örugglega.

Lög og varnarþing
Skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá Héraðsdómi Norðurlands eystra.

Keyrt á vefkerfi veidileyfi.is © 2024.