Við notum vafrakökur til að greina upplýsingar um notkun vefsíðunnar til að bæta efni og birta markaðsefni. Nánar um vafrakökur LEYFA VAFRAKÖKUR
Laxá í Aðaldal - Hraun

Laxá í Aðaldal - Hraun

2 stanga silungsveiðisvæði með urriðaveiði á heimsmælikvarða og möguleika á laxi


Hraun er eitt af þekktustu urriðasvæðum Laxár í Aðaldal. Svæðið liggur á móti Staðartorfu austan megin árinnar og skiptist í efri og neðri hluta. Hér eru stórir urriðar, tært vatn, fjölbreytt fluguveiðisvæði og einstaklega falleg náttúra.

Svæðið er sérstaklega skemmtilegt fyrir þá sem nota þurrflugur, púpur og straumflugur og þegar aðstæður leyfa getur þurrfluguveiðin verið frábær. Stærri fiskar sjást reglulega, og á haustmánuðum getur lax einnig leynst á svæðinu.


Veiðireglur

Veiðihús

Ekkert veiðihús fylgir svæðinu.

Gisting í nágrenni:


Annað

Skráning fer fram í AnglingIQ appinu.

Hraun er viðkvæmt svæði og mikilvægt er að fara varlega. Áin er tær og fiskar eru varir — því skiptir máli að halda ró og nálgast veiðistaði varlega.


Skilmálar

Umgangur og akstur

Veiðimenn skulu alltaf loka öllum hliðum á eftir sér. Óheimilt er að aka utan vegslóða eða inn á tún, engjar eða viðkvæm svæði nema með skriflegu leyfi landeiganda. Allur akstur skal fara varlega, og virða þarf merkingar, gönguleiðir og búfé.

Veiðireglur og ábyrgð veiðimanns

Einungis fluga er leyfð. Öllum fiski skal sleppt varlega aftur í ána (100% catch and release). Veiðimenn bera sjálfir ábyrgð á að kynna sér veiðisvæðið, reglur og mörk svæðisins áður en veiði hefst. Notkun á ermum, netum eða öðrum ólöglegum veiðitækjum er stranglega bönnuð.

Umgengni við veiðihús og aðstöðu

Veiðihúsið og aðstaða skulu skilin eftir snyrtileg og í sama ástandi og þau voru afhent. Allt rusl skal tekið með sér eða sett í tilheyrandi ílát. Veiðimenn bera ábyrgð á skemmdum sem verða af þeirra völdum á húsi, búnaði eða landareign.

Öryggi

Veiðimenn skulu gæta öryggis við allar aðstæður og bera ábyrgð á eigin hegðun á svæðinu. Börn og unglingar mega veiða aðeins í fylgd fullorðinna. Notkun á vöðlum, vöðlaskóm og öðrum búnaði er á ábyrgð veiðimanns.

Bókanir, greiðslur og endurgreiðslur

Veiðileyfi eru ekki endurgreidd nema ef veiði fellur niður af hálfu seljanda (t.d. vegna lokunar svæðis). Veiðileyfi er bundið á tilgreindan dag og er ekki hægt að færa milli daga nema með samþykki seljanda. Veiðimenn bera ábyrgð á að mæta á réttum tíma og á rétt svæði.

Veiðibók og skráning aflans

Skylt er að skrá allan afla og allar sleppingar í rafræna veiðibók kerfisins áður en veiðidegi lýkur. Seljandi áskilur sér rétt til að loka svæðum veiðimönnum sem vanrækja skráningar.

Ábyrgð og tjón

Seljandi ber enga ábyrgð á slysum sem kunna að verða á veiðisvæðinu. Veiðimenn veiða á eigin ábyrgð og skulu tryggja að þeir séu með réttan búnað fyrir aðstæður. Ábyrgð á tjóni á bílum, búnaði eða persónulegum munum er alfarið hjá veiðimanni.

Veiðiaðstæður eru alfarið háðar veðri, vatnsstöðu, hitastigi, rennsli og öðrum þáttum sem seljandi hefur enga stjórn á. Seljandi ber því enga ábyrgð á veðri eða náttúrulegum aðstæðum, þar á meðal þegar vatn er ófært, of lágt, of hátt, eða þegar veiði reynist erfið eða ómöguleg.Kaupendur eru upplýstir um að með kaupum á veiðileyfi sé verið að kaupa aðgang að veiðisvæði, ekki tryggingu fyrir veiði, aðstæðum eða afkomu fiska. Veður, vatnsstaða og náttúrulegar aðstæður

 Endurgreiðslur og breytingar

Veiðileyfi eru ekki endurgreidd vegna óhagstæðra aðstæðna, veðurs, vatnshæðar, hitastigs, rigningar, þurrka, kulda eða annarra náttúrulegra þátta. Seljandi leitast ávallt við að vinna með veiðimönnum þegar einstakar aðstæður skapast, en slík aðstoð felur ekki í sér skyldu til endurgreiðslu, framlengingar, tilfærslu veiðidaga eða annarra úrræða.

Samþykki skilmála

Með kaupum á veiðileyfi staðfestir kaupandi að hann hafi kynnt sér og samþykkt alla skilmála og reglur sem gilda um viðkomandi veiðisvæði. Skilmálarnir eru bindandi fyrir kaupanda frá því augnabliki sem greiðsla fer fram.



Keyrt á vefkerfi veidileyfi.is © 2025.