Við notum vafrakökur til að greina upplýsingar um notkun vefsíðunnar til að bæta efni og birta markaðsefni. Nánar um vafrakökur LEYFA VAFRAKÖKUR
Fjarðará í Hvalvatnsfirði

Fjarðará í Hvalvatnsfirði

Almennar upplýsingar


Í Fjörðum falla tvær bleikjuár til sjávar. Annars vegar er það Gilsá, sem heitir Fjarðará síðasta spölinn áður en hún fellur í Hvalvatnsfjörð, og hins vegar Hólsá í Þorgeirsfirði.

Til einföldunar er hér yfirleitt talað um Fjarðará sem samheiti yfir þessi veiðisvæði, þar sem mesta veiðin er yfirleitt skráð þar.

Vegurinn er yfirleitt ekki opnaður fyrr en um mánaðamótin júní/júlí og stundum síðar. Því er vissara að fara inn á vef Vegagerðarinnar, www.umferdin.is, til að kanna aðstæður, sérstaklega snemmsumars. Í snjóþungum árum opnar vegurinn ekki fyrr en langt er liðið á júlí.


Veiðireglur

Seldar eru 4 stangir á dag sem gilda á öllu svæðinu og eru þær aðeins seldar saman.

Veiðitími: Frjáls frá kl. 06:00 til 24:00.

Leyfilegt agn: Maðkur, fluga og spúnn.

Flugan er sterk um alla á. Á ósasvæðinu virka kúluhausar og þurrflugur vel, en á efri svæðum koma straumflugurnar sterkari inn.

Spúnninn er helst notaður á ósasvæðinu og jafnvel út við sjó. Þar eru þyrluspúnar að virka vel, til dæmis Finnska Lippan.

Maðkurinn er sterkur í efri hluta árinnar, í beygjum og pyttum þar sem fiskurinn getur legið.


Veiðihús

Ekkert veiðihús er við ána.


Annað

Til að komast í Fjörður er ekið út Eyjafjörð að austan í áttina að Grenivík. Skömmu áður en komið er að kauptúninu er beygt upp með Gljúfurá, um það bil 20 mínútna akstur frá Akureyri. Þaðan er ekið yfir Leirdalsheiði og niður í Hvalvatnsfjörð.

Sjóbleikja er í Fjarðará og er algeng stærð frá 1 til 2,5 pund. Einstaka sinnum veiðast lax og sjóbirtingur á svæðinu, en uppistaðan í veiðinni er sjóbleikja.

Bleikjuveiðin sveiflast eftir árum eins og gengur, en undanfarin ár hefur sjóbleikja byrjað að veiðast á ósasvæðinu seinnipartinn í júlí.


Skilmálar

Umgangur og akstur

Veiðimenn skulu alltaf loka öllum hliðum á eftir sér. Óheimilt er að aka utan vegslóða eða inn á tún, engjar eða viðkvæm svæði nema með skriflegu leyfi landeiganda. Allur akstur skal fara varlega, og virða þarf merkingar, gönguleiðir og búfé.

Veiðireglur og ábyrgð veiðimanns

Veiðimenn bera sjálfir ábyrgð á að kynna sér veiðisvæðið, reglur og mörk svæðisins áður en veiði hefst. Notkun á ermum, netum eða öðrum ólöglegum veiðitækjum er stranglega bönnuð.

Umgengni við veiðihús og aðstöðu

Veiðisvæðin skulu skilin eftir snyrtileg og í sama ástandi og þau voru afhent. Allt rusl skal tekið með sér eða sett í tilheyrandi ílát. Veiðimenn bera ábyrgð á skemmdum sem verða af þeirra völdum á húsi, búnaði eða landareign.

Öryggi

Veiðimenn skulu gæta öryggis við allar aðstæður og bera ábyrgð á eigin hegðun á svæðinu. Börn og unglingar mega veiða aðeins í fylgd fullorðinna. Notkun á vöðlum, vöðlaskóm og öðrum búnaði er á ábyrgð veiðimanns.

Bókanir, greiðslur og endurgreiðslur

Veiðileyfi eru ekki endurgreidd nema ef veiði fellur niður af hálfu seljanda (t.d. vegna lokunar svæðis). Veiðileyfi er bundið á tilgreindan dag og er ekki hægt að færa milli daga nema með samþykki seljanda. Veiðimenn bera ábyrgð á að mæta á réttum tíma og á rétt svæði.

Veiðibók og skráning aflans

Skylt er að skrá allan afla og allar sleppingar í rafræna veiðibók kerfisins áður en veiðidegi lýkur. Seljandi áskilur sér rétt til að loka svæðum veiðimönnum sem vanrækja skráningar.

Ábyrgð og tjón

Seljandi ber enga ábyrgð á slysum sem kunna að verða á veiðisvæðinu. Veiðimenn veiða á eigin ábyrgð og skulu tryggja að þeir séu með réttan búnað fyrir aðstæður. Ábyrgð á tjóni á bílum, búnaði eða persónulegum munum er alfarið hjá veiðimanni.

Veiðiaðstæður eru alfarið háðar veðri, vatnsstöðu, hitastigi, rennsli og öðrum þáttum sem seljandi hefur enga stjórn á. Seljandi ber því enga ábyrgð á veðri eða náttúrulegum aðstæðum, þar á meðal þegar vatn er ófært, of lágt, of hátt, eða þegar veiði reynist erfið eða ómöguleg.Kaupendur eru upplýstir um að með kaupum á veiðileyfi sé verið að kaupa aðgang að veiðisvæði, ekki tryggingu fyrir veiði, aðstæðum eða afkomu fiska. Veður, vatnsstaða og náttúrulegar aðstæður

 Endurgreiðslur og breytingar

Veiðileyfi eru ekki endurgreidd vegna óhagstæðra aðstæðna, veðurs, vatnshæðar, hitastigs, rigningar, þurrka, kulda eða annarra náttúrulegra þátta. Seljandi leitast ávallt við að vinna með veiðimönnum þegar einstakar aðstæður skapast, en slík aðstoð felur ekki í sér skyldu til endurgreiðslu, framlengingar, tilfærslu veiðidaga eða annarra úrræða.

Samþykki skilmála

Með kaupum á veiðileyfi staðfestir kaupandi að hann hafi kynnt sér og samþykkt alla skilmála og reglur sem gilda um viðkomandi veiðisvæði. Skilmálarnir eru bindandi fyrir kaupanda frá því augnabliki sem greiðsla fer fram.



Keyrt á vefkerfi veidileyfi.is © 2026.