Við notum vafrakökur til að greina upplýsingar um notkun vefsíðunnar til að bæta efni og birta markaðsefni. Nánar um vafrakökur LEYFA VAFRAKÖKUR
Laxá í Aðaldal - Hraun

Laxá í Aðaldal - Hraun

2 stanga svæði með urriðaveiði á heimsmælikvarða og laxavon!


Hraun er urriðasvæði rétt neðan virkjunnar í Laxá í Aðaldal austan við ána á móti Staðartorfu. Mjög skemmtilegt fjölskyldusvæði með mikilli náttúrufegurð og hreint frábært þurrflugusvæði þegar veður leyfir.


Veiðireglur

Seldar eru 2 stangir, hálfan dag í senn.

7-13 og 16-22 en eftir 15. ágúst 7-13 og 15-21.

Fluga eingöngu

Kvótinn er 2 fiskar á dag á stöng – skylt er að sleppa öllum laxi og öllu yfir 40 cm.


Veiðihús

Ekkert veiðihús er á svæðinu en veiðimönnum er bent á gistingu í nærliggjandi gistihúsum, Þinghúsinu, sími 464 3695, Gistihúsinu Brekku, sími 899 3008.


Annað

Skráning í veiðibók fer fram í AnglingIQ appinu eða hér https://logbooks.anglingiq.com/log?token=6d5e997c5bafb178538f5731cb6b3491



Skilmálar

Kaupandi skuldbindur sig til að skrá veiði í veiðibók. Veiðileyfi fást ekki endurgreidd.



Keyrt á vefkerfi veidileyfi.is © 2025.