Presthvammur er austurbakki efsta hluta urriðasvæðanna neðan virkjunnar í Laxá í Aðaldal. Mjög skemmtilegt urriða svæði með mikilli náttúrufegurð og hreint frábært þurrflugusvæði þegar veður leyfir.
Seldar eru 2 stangir, hálfan dag í senn.
7-13 og 16-22 en eftir 15. ágúst 7-13 og 15-21.
Fluga eingöngu
Sleppa þarf öllum laxi en 2 fiska kvóti er á urriða á stöng á hálfum degi.
Kaffiskúr með rennandi vatni og salerni er á svæðinu. Í kofanum eru áhöld til þess að hita og neyta matar en veiðimenn þurfa sjálfir að koma með gas. Þar eru tvö rúm og hægt er að tjalda eða setja upp tjaldvagn innan girðingar við veiðikofann. Veiðimönnum er bent á gistingu í nærliggjandi gistihúsum, Þinghúsinu, sími 464 3695, Gistihúsinu Brekku, sími 899 4218 ef menn vilja hafa meiri þægindi.
Veiðibókin er á staðnum.
Bátur er ekki á svæðinu eins og er. Þá skal það tekið fram að oft getur verið talsvert slýrek í ánni, sérstaklega síðsumars og þá verða steinar hálir og skyggni í vatninu slakt. Ástæða er til þess að biðja veiðimenn að fara varlega við slíkar aðstæður.
Skráning í veiðibók fer fram í AnglingIQ appinu eða hér https://logbooks.anglingiq.com/log?token=6d5e997c5bafb178538f5731cb6b3491
Kaupandi skuldbindur sig til að skrá veiði í veiðibók. Veiðileyfi fást ekki endurgreidd.