Við notum vafrakökur til að greina upplýsingar um notkun vefsíðunnar til að bæta efni og birta markaðsefni. Nánar um vafrakökur LEYFA VAFRAKÖKUR
Laxá í Aðaldal - Syðra Fjall

Laxá í Aðaldal - Syðra Fjall

2 stanga svæði með urriðaveiði á heimsmælikvarða og laxavon!


Syðra Fjall er eitt af þekktari urriðasvæðum Laxár í Aðaldal og liggur neðan við Múlatorfu, Frá Eyvindarlæk og niður að Laxhólmum. Svæðið er fallegt og fjölbreytt með tærum straumum, breiðum og djúpum rásum þar sem stærri urriðar halda sig. Þegar aðstæður leyfa er þurrfluguveiðin einstaklega skemmtileg og lax sést oft seinni hluta sumars. Á vatnslausum sumrum getur lax sem er á leiðinni upp í Reykjadalsá stoppað í skilunum þar sem Eyvindarlækur rennur út í Laxá.


Veiðireglur

Veiðihús

Ekkert veiðihús er á svæðinu.

Nærliggjandi gistimöguleikar:

Gistiheimili Þinghúsið, sími 464 3695

Gistiheimili Brekka, sími 899 4218


Annað

Skráning í veiðibók fer fram í AnglingIQ-appinu:

Vatnsborð sveiflast talsvert eftir veðráttu og getur haft áhrif á skyggni og aðgengi. Fiskar eru varir þegar vatn er lágt og því mikilvægt að nálgast veiðistaði rólega og varlega.


Skilmálar

Umgangur og akstur

Veiðimenn skulu alltaf loka öllum hliðum á eftir sér. Óheimilt er að aka utan vegslóða eða inn á tún, engjar eða viðkvæm svæði nema með skriflegu leyfi landeiganda. Allur akstur skal fara varlega, og virða þarf merkingar, gönguleiðir og búfé.

Veiðireglur og ábyrgð veiðimanns

Einungis fluga er leyfð. Öllum fiski skal sleppt varlega aftur í ána (100% catch and release). Veiðimenn bera sjálfir ábyrgð á að kynna sér veiðisvæðið, reglur og mörk svæðisins áður en veiði hefst. Notkun á ermum, netum eða öðrum ólöglegum veiðitækjum er stranglega bönnuð.

Umgengni við veiðihús og aðstöðu

Veiðihúsið og aðstaða skulu skilin eftir snyrtileg og í sama ástandi og þau voru afhent. Allt rusl skal tekið með sér eða sett í tilheyrandi ílát. Veiðimenn bera ábyrgð á skemmdum sem verða af þeirra völdum á húsi, búnaði eða landareign.

Öryggi

Veiðimenn skulu gæta öryggis við allar aðstæður og bera ábyrgð á eigin hegðun á svæðinu. Börn og unglingar mega veiða aðeins í fylgd fullorðinna. Notkun á vöðlum, vöðlaskóm og öðrum búnaði er á ábyrgð veiðimanns.

Bókanir, greiðslur og endurgreiðslur

Veiðileyfi eru ekki endurgreidd nema ef veiði fellur niður af hálfu seljanda (t.d. vegna lokunar svæðis). Veiðileyfi er bundið á tilgreindan dag og er ekki hægt að færa milli daga nema með samþykki seljanda. Veiðimenn bera ábyrgð á að mæta á réttum tíma og á rétt svæði.

Veiðibók og skráning aflans

Skylt er að skrá allan afla og allar sleppingar í rafræna veiðibók kerfisins áður en veiðidegi lýkur. Seljandi áskilur sér rétt til að loka svæðum veiðimönnum sem vanrækja skráningar.

Ábyrgð og tjón

Seljandi ber enga ábyrgð á slysum sem kunna að verða á veiðisvæðinu. Veiðimenn veiða á eigin ábyrgð og skulu tryggja að þeir séu með réttan búnað fyrir aðstæður. Ábyrgð á tjóni á bílum, búnaði eða persónulegum munum er alfarið hjá veiðimanni.

Veiðiaðstæður eru alfarið háðar veðri, vatnsstöðu, hitastigi, rennsli og öðrum þáttum sem seljandi hefur enga stjórn á. Seljandi ber því enga ábyrgð á veðri eða náttúrulegum aðstæðum, þar á meðal þegar vatn er ófært, of lágt, of hátt, eða þegar veiði reynist erfið eða ómöguleg.Kaupendur eru upplýstir um að með kaupum á veiðileyfi sé verið að kaupa aðgang að veiðisvæði, ekki tryggingu fyrir veiði, aðstæðum eða afkomu fiska. Veður, vatnsstaða og náttúrulegar aðstæður

 Endurgreiðslur og breytingar

Veiðileyfi eru ekki endurgreidd vegna óhagstæðra aðstæðna, veðurs, vatnshæðar, hitastigs, rigningar, þurrka, kulda eða annarra náttúrulegra þátta. Seljandi leitast ávallt við að vinna með veiðimönnum þegar einstakar aðstæður skapast, en slík aðstoð felur ekki í sér skyldu til endurgreiðslu, framlengingar, tilfærslu veiðidaga eða annarra úrræða.

Samþykki skilmála

Með kaupum á veiðileyfi staðfestir kaupandi að hann hafi kynnt sér og samþykkt alla skilmála og reglur sem gilda um viðkomandi veiðisvæði. Skilmálarnir eru bindandi fyrir kaupanda frá því augnabliki sem greiðsla fer fram.



Keyrt á vefkerfi veidileyfi.is © 2025.