Við notum vafrakökur til að greina upplýsingar um notkun vefsíðunnar til að bæta efni og birta markaðsefni. Nánar um vafrakökur LEYFA VAFRAKÖKUR
Mýrarkvísl í Reykjahverfi

Mýrarkvísl í Reykjahverfi

4 stanga laxveiðisvæði með stórlaxvon og frábærri urriðaveiði!


Mýrarkvísl er ein af hliðarám Laxár í Aðaldal. Eins og Laxá í Aðaldal er Mýrarkvísl þekkt fyrir háa meðalþyngd laxa og undurfagurt umhverfi. Mýrarkvísl rennur út í Laxá í Aðaldal um fjórum kílómetrum frá ósi Laxár. Þrátt fyrir að vera hliðará Laxár er varla hægt að segja að árnar séu líkar. Mýrarkvísl er frekar nett veiðiá sem þarf að fara nokkuð varlega að til að ná góðum árangri. Hún er rúmlega 25 kílómetra löng og á upptök sín í Langavatni. Það er lítið um miklar fyrirstöður í ánni fyrir laxinn fyrr en við Reykjafoss þar sem er laxastigi.


Veiðireglur

Veiðitími morgunvaktar er frá kl. 7 til 13 og veiðitími kvöldvaktar er frá kl. 16 til 22 til og með 10. ágúst, en eftir það frá kl. 15 til 21.

Veiðimenn mega koma í veiðihús kl 15:00 á komudegi til 10 ágúst en eftir það kl 14:00.

Tæma þarf herbergi fyrir kl 10:00 og hús fyrir klukkan 13:00 á brottfaradegi til 10. ágúst en eftir það þarf að tæma veiðihús fyrir kl 12:00 á brottfarardegi.

Seldar eru 4 stangir á dag.

Eingöngu er veitt á flugu í Mýrarkvísl.

Sleppa skal öllum laxi en heimilt að drepa urriða.


Veiðihús

Veiðihúsið Langholt við Mýrarkvísl

4 tveggja manna herbergi með sér baði og heitur pottur!

Veiðihúsið er staðsett við sumarbústaðarlandið neðan við Þverá á vegi 8852. Húsið er með 4 tveggja manna herbergjum sem öll eru með sér baðherbergi, úti er stór pallur og heitur pottur.

í húsinu eru grill, bakarofn, helluborð, kæliskápur með smá frystiplássi, kaffivél og flest öll nútíma eldhústæki.

Það er gólfhiti í húsinu með sér stillingu fyrir hvert herbergi.

Herbergin:

Eru passlega stór með tvö einbreið rúm sem þó er hægt að setja saman, náttborð, töskuhilla, fatahengi og stóll.

Inn af herberginu er flísalagt baðherbergi með góðri sturtu.

Húsreglur:

Það er skildu uppábúið og herbergjaþrif 60.000 kr á hvern hóp. Húsgjaldið er greitt við pöntun.

Gestir bera sjálfir ábyrgð á að halda alrými (eldhúsi, stofu og forstofu) hreinu.

Mikilvægt er að tæma pott eftir notkun og festa lokið með strekkiböndum sem eru við pottinn.

Gestir verða að fjarlægja allt rusl og mat úr húsinu við brottför. Ruslagámur er staðsettur við húsið.

Leigusali áskilur sér rétt til að rukka aukalega fyrir þrif á húsi ef umgengni stenst ekki kröfur.


Annað

Seldar eru stakar stangir í einn dag í senn frá hádegi til hádegis eða í hollum þar sem margar stangir eru seldar saman.

Árleg veiði síðustu ára hefur verið 200-400 laxar og um 1.250 urriðarar.

Skráning í veiðibók fer fram í AnglingIQ appinu eða hér https://logbooks.anglingiq.com/log?token=55d5a1a27ea6f6480f05c894a9bfbbdd

Bætt aðgengi og lagfæringar á veiðistöðum

Frá árinu 2014 höfum við lagað mikið af veiðistöðum sem höfðu fyllst af möl og grjóti og hefur það gefið góða raun. Bar það svo við að 38% veiðinnar 2019 kom úr veiðistöðum sem hafa verið lagfærðir á meðan að sömu staðir báru aðeins ábyrgð á 4% af veiðinni árið 2014. Einnig hefur stór hluti veiðislóðans verið lagfærður og göngubrú smíðuð sem auðveldar aðgengi í marga veiðistaði í gilinu.


Skilmálar

Kaupandi skuldbindur sig til að skrá veiði í veiðibók. Veiðileyfi fást ekki endurgreidd.



Keyrt á vefkerfi veidileyfi.is © 2025.